
Umhirða og viðhald 47
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
47

•
Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur
dregið úr endingu rafeindatækja, skemmt rafhlöður og
undið eða brætt sum plastefni.
•
Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið
hitnar upp að eðlilegu hitastigi getur raki myndast
innan í því og hann getur skemmt rafrásaspjöld.
•
Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en tilgreint er
í þessari handbók.
•
Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista
það. Óvarleg meðferð getur skemmt innri rafrásaspjöld
og fíngerðan búnað.
•
Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða
sterk hreinsiefni til þess að þrífa tækið.
•
Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega
hluti tækisins og komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.
•
Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með símanum eða
samþykkt varaloftnet. Ósamþykkt loftnet, breytingar á
þeim eða viðbætur, gætu skemmt tækið og kunna að
brjóta í bága við ákvæði laga um senditæki.
•
Nota skal hleðslutæki innandyra.
•
Alltaf skal taka öryggisafrit af gögnum sem ætlunin er
að halda, t.d. tengiliðum og dagbókaratriðum.
•
Hægt er að endurstilla tækið af og til og tryggja þannig
hámarksafköst með því að slökkva á tækinu og
fjarlægja rafhlöðu þess.
Þessar ábendingar eiga jafnt við um tækið, rafhlöðuna,
hleðslutækið eða annan aukabúnað. Ef tæki vinnur ekki rétt
skal fara með það til næsta viðurkennda þjónustuaðila til
lagfæringar.