Nokia 3720 classic - Hugbúnaðaruppfærsla með ljósvakaboðum

background image

Hugbúnaðaruppfærsla með

ljósvakaboðum

Þjónustuveitan getur sent

hugbúnaðaruppfærslur beint í símann

þinn (sérþjónusta). Það fer eftir símanum

hvort hægt er að velja þennan valkost.
Það að hlaða hugbúnaðaruppfærslum

getur falið í sér stórar gagnasendingar

(sérþjónusta).
Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi

næga hleðslu eða tengdu hleðslutækið

áður en uppfærslan er ræst.

Viðvörun:

Ekki er hægt að nota tækið, jafnvel ekki til

að hringja neyðarsímtöl, fyrr en

uppfærslunni er lokið og tækið hefur verið

endurræst. Taka skal öryggisafrit af

gögnum áður en uppfærsla er samþykkt.

Stillingar fyrir uppfærslu

Það fer eftir símanum hvort hægt er að

velja þennan valkost.
Til að leyfa eða banna uppfærslur á

hugbúnaði og stillingum velurðu

Valmynd

>

Stillingar

>

Samskipan

>

Still. f. stjórn. tækis

>

Uppf.

þjónustuveitu

.

Beiðni um hugbúnaðaruppfærslu

1 Veldu

Valmynd

>

Stillingar

>

Símastillingar

>

Uppfærslur

til að

biðja um tiltækar

hugbúnaðaruppfærslur frá

þjónustuveitunni.

2 Veldu

Um núverandi útgáfu

til að

birta upplýsingar um

hugbúnaðarútgáfu símans og kanna

hvort nauðsynlegt sé að uppfæra

hana.

3 Veldu

Sækja hugb. f. síma

til að

hlaða niður og setja upp

hugbúnaðaruppfærslu. Fylgdu

fyrirmælunum á skjánum.

4 Ef hætt var við uppsetningu eftir

niðurhal velurðu

Setja upp

uppfærslu

til að ræsa uppsetningu.

Uppfærslan getur tekið nokkrar mínútur.

Hafðu samband við þjónustuveituna ef þú

átt í vandræðum með uppfærsluna.